Aðalfundur Björgunarfélags Akraness var haldin 14. mars sl. í húsnæði félagsins að Kalmannsvöllum 2.
Fundurinn var góður og gekk vel fyrir sig, á fundinum voru venjuleg aðalfundarstörf ásamt því að fimm nýliðar voru teknir inn í félagið. Nýjir aðilar voru kosnir í stjórn og lýtur stjórnin út sem hér segir,
Formaður, Þór Bínó Friðriksson
Varaformaður, Gísli Sigurjón Þráinsson
Gjaldkeri, Kjartan Kjartansson
Ritari, Guðrún Birna Ásgeirsdóttir
Meðstjórnandi, Sigurður Axel Axelsson
Varamaður, Björn Guðmundsson
Varamaður, Silvia Llorens Izaquine
Félagið vill þakka fráfarandi stjórnarmönnum fyrir sitt óeigingjarna starf í þágu félagsins, þeim Ásgeiri Kristinssyni fráfarandi formanni og Margréti Helgu Guðmundsdóttur fráfarandi varamanni.
|